þriðjudagur, 21. júlí 2026

Ráðgátan Henri Pick og Dostojevskis Samlede værker

 Ég var að ljúka við skáldsöguna Ráðgátan Henri Pick eftir David Foenkinos (spes nafn, grunar að það gæti verið bretónskt, þar heita allir einhverjum nöfnum sem virka eins og þau séu úr Tolkien). Skemmtileg bók, fyrir utan kannski endinn sem mér fannst yfirútskýrður og smá skringilegum köflum um konur sem "hætta að hugsa um útlitið" eftir fimmtugt, ekki stórmál að mínu mati, mæli eindregið með bókinni. Íslensk þýðing Yrsu Þórðardóttur rennur vel og er skemmtileg og nær alveg einhverri svona franskri stemmingu (hvað sem það nú er). 

Í seinni hluta bókarinnar kynnumst við lykilpersónu sem er þýsk kona sem hefur sest að í Frakklandi og talar eins og innfæddur. Örlögin haga því þannig að hún flytur inn í hús þar sem er mikið af bókum, og á blaðsíðu 237 er þessu lýst svona: "Hillurnar voru bágbornar, fannst henni. Hún vildi ekki láta lífið kramin af samlede værker eftir Dostojevskí sagði hún" (skáletrun upprunaleg). Persónan er þýsk, stödd í Frakklandi og þýðandi velur að láta hana tjá sig á dönsku. Þetta val er mjög áhugavert. Var þetta á dönsku í upprunalega textanum? Ef það var á þýsku er þá ástæðan fyrir því að hafa þetta á dönsku að íslenskur lesandi skilji það frekar? Gerði Yrsa veðmál við vini sína um að hún myndi koma dönskum frasa að í þýðingunni? Eru kannski danskir frasar í öllum þýðingum hennar? Var það hugmyndin að í hinu mikla bókasafni hússins væri í alvöru safn af Dostojevskí þýddum á dönsku: það er útúrsteikt pæling. 

Það væri gaman að fá svarið, en líka gaman að dvelja í spurninni og þar sem þessi bók er svona bókmenntaleg ráðgata; "bókasafnsbók" í þeim skilningi að í kjarna plottsins er bókasafn og það hverfist um mikla flækju af vísunum í aðrar bókmenntir, einkum kannski bandarískar og reyndar líka rússneskar. Ég hugðist draga mikla ályktun um það hvað það er mikilvægt og skemmtilegt að kunna mörg tungumál og hvernig það auðgar upplfiun okkar á bókmenntum og heiminum, en ég er ekki alveg viss hvernig sú röksemdafærsla átti að vera, en hins vegar er það alveg satt og segjum þetta gott í bili, endilega lesa þessa bók og segið mér frá ef aðrar bækur höfundar eru líka skemmtilegar, nú eða kvikimyndirnar sem hann hefur greinilega líka fengist við! 

Ósamstæð markmið

Þetta verður stuttur póstur og kannski má flokka þetta sem tilraun til að fremja einhvers konar heimspeki. Það er ekki ætlun mín að vera frumlegur, svipaðar pælingar eru til í ýmsum myndum, en samt sýnist mér á umræðum um ýmis mál að þessi kannski frekar augljósa ábending sé ekki ofarlega í huga fólks í umræðu um ýmis mál sem ofarlega eru baugi hverju sinni. 

Þegar við reynum að ákveða hvað við viljum gera sem samfélag eða einstaklingar þá erum við með ýmis göfug markmið. Til að ná þessum markmiðum framkvæmum við ákveðna hluti og svo gengur þetta misvel eins og gengur. Dæmi um göfug markmið eru tannheilsa og minni mengun. Til að ná góðri tannheilsu þá notum við tannþráð, burstum tennurnar og förum til tannlæknis reglulega. Þar sem ég er bara með þetta sem dæmi þá skulum við gefa okkur að bæði aðgerðir í samfélaginu og hegðun einstaklinga hafi að ýmsu leyti skilað sér og tannheilsa hafi batnað og það er gott mál. Hins vegar er ljóst að þessu fylgir gríðarleg vatnsnotkun, efnamengun og ýmislegt fleira sem er ekki í samræmi við markmið um minni mengun. Kannski væri hægt að hugsa sér tannþráð sem væri umhverfisvænni, nota minna vatn við tannburstun o.s.frv. en hins vegar er það ljóst í þessu dæmi að bæði markmiðin eru góð, en það er bara mjög erfitt að ná þeim báðum. 

Einstaka hlutir eru þó þannig að ákveðnar aðgerðir og nálganir skila árangri fyrir fleiri en eitt markmið. Þannig má segja það að með því að reyna að haga því þannig að fólk geti gengið eða hjólað í vinnu og í ýmis erindi frekar en að nota einkabíl þá drögum við úr mengun og eflum lýðheilsu, andlega og líkamlega á sama tíma. 


Aftur bara lítið dæmi til að hugsa um, en gaman að pæla í þessu og gott að leggja hlutina svona upp af fullum heiðarleika þegar við erum að meta ákvarðanir okkar. Þegar við metum hvort við viljum að tiltekið landsvæði verði að gofvelli, þar rísi vindmyllur eða að það fái bara að vera í friði sem skógur eða mýri þá þurfum við að hugsa hlutina í þessu samhengi (golfvöllur væri að mínu mati sísti kosturinn, en allt má ræða). 

fimmtudagur, 16. júlí 2026

Meining

Kláraði nýlega að hlusta á þættina Meining hjá RÚV, þeas. seríuna um kaþólsku á Íslandi. Þetta eru algjörlega frábærir þættir og óhætt að segja að Anna Gyða Sigurgísladóttir sé mikill meistari þessa forms, ítarlegir og djúpir þættir um krefjandi, viðkvæm og flókin málefni og eiginlega finnst mér eins og þarna renni saman listræn vinnubrögð, fræðilegur agi og fyrsta flokks blaðamennska. 

Eitt af því sem ljær þáttunum notalegt og aðlaðandi yfirbragð er hvernig upptökurnar eru ekki dauðhreinsaðar af hljóðum hversdagsins, það glymur í bollum, barnsgrátur heyrist í bakgrunni, einhver er seinn út af umferðarteppu o.s.frv.

Persónu hennar sjálfrar fær líka að vera með án þess að hún trani sér fram og fyrst og fremst er það þessi smitandi og djúpstæði áhugi á ráðgátum lífsins, og í þessu tilfelli hvað er það sem laðar fólk að, og heldur fólki í, stofnun eins og kaþólsku kirkjunni. 

Anna nálgast viðfangsefnið af mikilli næmni og virðingu, án þess að detta í að forðast erfið mál eins og afstöðu kirkjunnar til samkynhneigðra og kynjajafnréttis og erfiðra sögu hennar hérlendis og annars staðar í ýmsum ofbeldismálum.. Hún (og við) erum jafn gáttuð á því öllu saman eftir allt ferðalagið þó við séum sameiginlega stórum fróðari um margt annað.

Annað sem kemur klárlega fram í þessum þáttum er að fólk frá öðrum löndum getur auðveldlega lært íslensku og það er mjög gaman að hlusta á margbreytileika tungumálsins með öðrum hreimum. Það er líka merkilegt að læra hversu magnað starf Jósefssystra var snemma á öldinni og að þar hafi verið mikilvægt framlag í þróun þess sem verður heilbrigðisþjónusta eins og við þekkjum hana í dag. 

Löng og djúp viðtölin er grípandi og áhrifamikil og mér finnst viðtalið við Jónas Sen vera eitt það magnaðasta sem ég hef heyrt í útvarpsþætti. 

Það sem situr samt mest í mér er algjörlega óviðkomandi kaþólskunni. Það er annars vegar frændi systur Clementiu sem er pípulagningameistari. Hann og Anna fara að ræða um hvernig maður laðast að lífsstarfi sínu og hvað það geri að maður helgi sig einhverju, og hann lýsir hvernig hann gerðist pípulagningameistari og hvernig hann upplifði það starf sem mjög mikilvægt og grundvallaratriði fyrir mannlífið, því að leiða vatn til fólks sé eitthvað það almikilvægasta sem hægt sé að gera, þarna náði hún fram einhverju mómenti og sjálfsrýni og sannleika sem snart mig. Hitt var þegar níræða frænka systur Stanislaus var að rifja upp samband sitt á efri árum við Óla (þá látinn fyrir tveimur árum), hvernig þau hefðu dansað og notið lífsins, og þegar hún (maður sér það ekki en heyrir) horfir á myndina af honum og segir "Æ, Óli minn" ....  

Ættu allir að hlusta! Veit svo að það eru líka margar aðrar þáttaraðir sem hún hefur gert sem ég á eftir að hlusta og ég hlakka mikið til! Veisla! 

 

laugardagur, 12. júlí 2025

Lagatvenna um margboðuð morð

 Vegna mikillar eftirspurnar hef ég enn á ný þáttinn lagatvenna hér. Hér eru tvö lög um boðuð morð sem við vitum ekki hvort eiga sér stað. Fyrra lagið er I am coming to Paris to kill you með Timber Timbre, hugljúft lag sem vekur aðeins óþægileg hughrif: 

I am coming to Paris to kill you 

Næsta lag er með Dr Gunna, aðeins flóknari og mögulega enn torræðari texti. 

Alltaf á leiðinni

Óvenjuleg viðfangsefni í dægurlögum en hressandi! 

miðvikudagur, 21. maí 2025

Kalak - Kim Leine



Var að klára þessa mögnuðu og erfiðu bók. Spurður hvernig það væri að skrifa svona hráa og persónulega bók um þá hrikalega af misnotkun, ofbeldi, áföllum og baráttu við fíkn segir Kim að það sé það besta sem hann hafi gert. Sá sem ekki opni sig og lofti út endi eins og Gollum í Hringadrottinssögu. Það er eitthvað í því hvernig Kim skrifar um sjálfan sig sem er merkilegt, bæði mjög beinskeytt og miskunnarlaust; hvorki sentímental né dæmandi. Þar sem ég hef líka lesið grænlandsþríleikinn þá leitar hugurinn eftir mynstrum og maður finnur einhvern óm af aðalpersónum, aukapersónum og stöðum. Flókið samband við trú, bókmenntir, kynlíf, tungumál og ídentítet sem knýr hann áfram bæði á þeirri glötunarleið sem hann fetar framan af ævi og svo líka sem höfundur er ómótstæðileg. Hann skrifar líka alveg ótrúlega djúsí dönsku, með ríkulegum aðeins fornlegum orðaforða og nýja uppáhaldsorðið mitt sem verður að nýrri dönskuslettu er að kverúlera. 

Líka gaman að ég keypti bókina í fornbókabúð á Nörrebro, rétt hjá det Frie, eftir áskorun frá Óla Njáli um að það væri dónalegt að vera alltaf að kíkja við hjá þessum næs gaur án þess að kaupa neitt. Bóksalinn vildi reyndar meina að bókin væri nú líklega að stórum hluta upplogin en það skipti ekki máli hún væri jafngóð fyrir því, en í fyrsta skipti sem ég hitti þennan kall var hann miður sín að þekkja ekki að hreimurinn á dönskunni minni væri íslenskur. 

sunnudagur, 19. maí 2024

Draumur um formennsku í húsfélaginu

 (þetta er smá svona pæling og kannski lítil og krúttleg klípusaga) 

Segjum sem svo að ég búi í þokkalega stórri blokk á stórreykjavíkursvæðinu. Ég er frekar svona drífandi karakter og hef miklar skoðanir varðandi rekstur húsfélagsins, og er ekki ánægð með stöðu mála og stefni á framboð á næsta húsfundi. Vandinn er sá að ég er kannski ekki vinsælasti íbúinn og hef gegnum árin strokið nokkrum í húsinu öfugt.

Í borginni starfar fyrirtæki sem heitir "Kosningasmiðjan". Af þessu fyrirtæki er hægt að kaupa þjónustu sem felur í sér hjálpi fólki að ná kjöri, í fyrirtækjum, innan flokka o.s.frv. Fyrirtækið beitir hringingum, sóknum á félagsmiðlum, rógburði og ýmsu öðru sem hjálpar til að koma viðskiptavininum í embætti sem viðkomandi óskar eftir. Einhver tengsl eru milli fyrirtækisins og stórs stjórnámálaflokks. 

Það eru þrjár leiðir til að fá þjónustu hjá þessu fyrirtæki: 

A kaupa þjónustana beint, borga X% út og svo meira ef árangur næst

B falast eftir þjónustunni pro bono

C fá óumbeðið tilboð í þjónustuna

Jafnframt er hægt að velja hvort að maður er bara opin með að hafa átt í þessum viðskiptum eða hvort maður heldur því alveg fyrir sig, seinni kosturinn kann að vera áhrifaríkari. 

Þjónustan er dýr, en ef þetta er mér mikið kappsmál þá er það mín skoðun að þetta verði húsfélaginu fyrir bestu til lengri tíma litið. 

Kostir B og C eru áhugaverðir. B, af hverju ættu þau að hjálpa, og C er enn dularfyllra. 

Í þessu sambandi hugsa ég að það sé enginn ókeypis hádegisverður og líklega væri þá eins og daninn segir underforstået að fyrst þau hjálpuðu mér ættu þau eitthvað inni hjá mér. Ef nefndur flokkur kæmist til valda og upp kæmu einhverjar pælingar með segjum skipulagsmál þá myndi vera reiknað með því að ég væri ekki með mikið vesen í sambandi við það, svo dæmi sé tekið. 

Til skemmri tíma væri það að mínu mati klárlega best fyrir húsið að ég nái kjöri (farið í nauðsynlegt viðhald o.s.frv.) en langtímaafleiðingarnar og svona einhverjar svona pælingar um siðferði og eðlilegan framgang lýðræðis vefjast fyrir mér. 

Hvaða ráð gefið þið mér ef leið C er í boði, ætti ég að leita eftir leið B, nú eða A (segjum sem svo ég eigi nógan pening) - eða ætti ég að forðast Kosningasmiðjuna eins og pestina? 

sunnudagur, 28. janúar 2024

Málleysingjarnir eftir Pedro Gunnlaug Garcia

 


 Ég var að ljúka við að lesa þessa möguðu skáldsögu. Geggjað verk, að baki liggur greinilega mikil rannsóknarvinna, og í samhengi við Lungu eftir sama höfund sést að glíman við hvernig tráma ferðast í gegnum kynslóðir er Pedro mjög hugleikið. En svo er þessi dans á mörkum og alveg yfir í vísindaskáldskap og sturlaðan og grótesk súrrealisma mér mjög að skapi. Samband okkar við fugla er greinilega líka ofarlega í huga skáldsins..... Kaflarnir um tilveruna í Rúmeníu og afturhvarf til endaloka kommúnismans er líka virkilega djúsí - eftir smá gúggl fann ég nú ekki að þau viðbjóðslegu hjón sem þar ríktu hafi verið í kukli með dýr eins og lýst er í skáldsögunni, en arfleifð þeirra er þó mjög steikt, eins og kemur fram í þessari grein um gervivísindaferil Elenu Ceausescu. Úff. 

Heillandi pælingar Pedros um samfélagsmiðlavæðingu, gervigreind, alkóhólimsma, upplifunarhönnun og erfðaverkfræði eru eitthvað sem ég mæli eindregið með - og svo er hann líka á einhvern mjög óþægilegan hátt mjög fyndin líka. Takk fyrir mig, og hlakka til að sjá meira! Eina sem ergir mig smá er að helsta illmenni sögunnar heiti í höfuðið á einum merkasti hugsuði anarkismans, og ég fatta ekki alveg hvað það á að merkja.... 





sunnudagur, 30. apríl 2023

Sameiningar og allir í verknám!

Í síðustu viku kom upp umræða að sameina eigi Kvennaskólann og Menntaskólann við Sund og starta nýjum skóla í Stakkahlíð, sem nú um stundir hýsir Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ein af ástæðum þess að flytja þurfi MS er sögð að húsnæði skólans sé myglað, en svo er víst Stakkahlíðin líka mygluð - svo mögulega væri verið að fara úr myglunni í fúkkann. Rökin fyrir svona sameiningu eru fjárhagsleg hagræðing og einhver samlegðaráhrif sem samkvæmt reiknimeisturum skili til lengri tíma hagnaði. Jafnframt er talað um minnkandi árganga svo þörfin fyrir framhaldsskólapláss muni fara minnkandi á næstu árum.  

Þetta er gott og blessað, en rökin fyrir því að velja þess tilteknu skóla eru ekki augljós. Skólarnir tveir eru mjög ólíkir og í þeim báðum hefur farið mikil vinna í að þróa og prufukeyra fyrirkomulag náms sem má segja að séu á sitthvorum enda e.k. rófs bekkjarkerfis og áfangakerfis. MS er með einhvers konur ofuráfangakerfi með þrjár annir og lotufyrirkomulag, Kvennó með bekkjarkerfi með töluvert miklu vali sem var þróað sem ákveðin fyrirmynd fyrir aðlögun að styttingu framhaldsskólans - og það fyrirkomulag er t.d. að ýmsu leyti fyrirmynd kerfisins sem tekið var upp við styttingu í skólanum mínum, Versló. Bæði þessi kerfi hafa fallið vel í kramið hjá framhaldsskólanemum og mikil aðsókn verið að báðum þessum skólum undanfarin ár. Svo má líka benda á að námsfyrkomulagið í langvinsælasta skóla landsins, sem er víst einmitt Versló, líkist um margt fyrirkomulaginu í Kvennó. Ef sameina á þessa tvo skóla er útilokað að halda í bæði þessi módel og mikil óvirðing við þróunarstarfið í báðum þessum skólum að taka alla þá vinnu og henda henni í ruslið. Miklu nær vær að sameina skóla sem eru með hefðbundnari útfærslur á áfangakerfinu, nú eða að sameina tvo bekkjarskóla (FB/ FÁ, MH/ FÁ, MR/Kvennó, Kvennó/ Versló .... ). Það er aðalsmerki íslenska framhaldsskóla hversu fjölbreytileg flóran er hjá okkur og sveigjanleikinn í kerfinu er mikill. Hins vegar er það svo að bekkjarkerfið er í ákveðinni varnarbaráttu (það virðist ekki henta yfirvöldum þó eftirspurn eftir því sé mikil hjá nemendum) og ég óttast mjög að þessi nýi skóli myndi frekar dám af áfangafyrirkomulaginu í MS en kerfinu í Kvennó. 

Önnur hlið á þessu máli eru áætlanir um að mikið stærri hluti nemenda fari í verknám. Jákvætt er að nýlega hefur eftirspurn eftir verknámi aukist, en hins vegar finnst mér það mjög hæpið að ætla að handstýra stórum hluta árganga í eitthvað tiltekið nám, og velti því mjög fyrir mér hvernig eigi að fara að því. Hér óttast ég að ákveðnir hópar sem fara í bóknám tryggi stöðu sína enn frekar í samfélaginu og hér sé uppskrift að meiri stéttaskiptingu og elítumyndun. Aukin tölvuvæðing, meiri alþjóðasamskipti, breytingar á stöðu íslenskunnar og margt fleira held ég geti einmitt kallað á öflugt bóknám þar sem þekking á tungumálum, samfélaginu og grunngerð þess og flóknari færni tengd tölvum og tækni verði mikilvægari en verknám. Ég veit þetta náttúrulega ekki, en eins og ég hef bloggað um áður þá finnst mér að það eigi að hlusta á það hvað fólk vill þegar boðið er upp á nám en ekki semja einhverjar loftkenndar fimm ára áætlanir sem byggja á heimi sem er að líða undir lok og tengist ekki endilega þeim heimi sem býður okkar í þoku framtíðarinnar. 


miðvikudagur, 12. janúar 2022

Merking eftir Fríðu Ísberg

 




This is the way the world ends

Not with a bang but a whimper.

        
Forsíða skáldsögunnar Merking eftir Fríðu Ísberg er listaverk eftir Kristínu Helgu Ríkharðsdóttur og Kristínu Karólínu Helgadóttur kallar fram í huga mér ljóðið the Hollow Men eftir T.S. Eliot, sem lýkur á þessum ekkert sérstaklega hressandi og margívitnuðu orðum. Saga Fríðu fjallar einmitt um einhvers konar endalok, endalok einhvers sem er kannski ekki alveg ljóst hvað var. Í þessu bloggi ætla ég að setja fram nokkrar pælingar út frá bókinni sem ég vona að hressi og kæti einhverja og veki mögulega einhver viðbrögð.  Rétt er að taka fram að pistilinn innihelur spilliefni fyrir þá sem ekki hafa lesið bókina. 

Fyrst er til þess að taka að þessi skáldsaga tilheyrir geirabókmenntum, hér er á ferðinni vísindaskáldsaga af gerðinni framtíðardystópía. Hér sver hún sig í ætt með 1984 George Orwell, Handmaid's tale Margret Atwood og Clockwork Orange eftir Anthony Burgess. Tengingin sem mér finnst samt áleitnust eru bresku þættirnir Black Mirror, en þættirnir Nosedive og 15 million merits koma upp í hugann. Hér er fjallað um framtíðarsamfélag þar sem fólki er skipt upp í hópa með því að beita sálfræðiprófi sem mælir samkennd. Slík flokkun á fólki er viðvarandi þema í svona bókmenntum, en flokkunarkerfið sem Fríða bíður upp á er óvenjuögrandi - því hvern myndi ekki vilja búa í samfélagi þar sem samkennd einkennir alla sem þú umgengst? Ólíkt samfélagsmiðlavíti t.d. Nosedive þar sem yfirborðskennd like annarra eru það sem skiptir máli, er hér um vísindalegt alvörupróf að ræða samkvæmt rökvísi heims bókarinnar, og í rauninni fáir sem draga gildi þess í efa í bókinni. Samskipti fólks við rafrænar mælingar snjalltækja hefur náð nýjum hæðum í verkinu og ræða allir við rafræna veru sem heitir Zoë sem er arftaki Siri og Alexu. Það eru komnar lestir í Reykjavík og byggð í Viðey. 

Hugmyndin um Merkinguna sem er þungamiðja verkisins er að hægt sé að mæla samkennd með viðbrgöðum við svipbrigðum fólks og þá er viðfangið tengt við heilaskanna af einvherju tagi. Ekki virðist vera hægt að svindla á prófinu með einföldum hætti. Sálfræðingafélag Íslands (SÁL) er leiðandi afl í beitingu þessa prófs. Þeir sem ná prófinu eru svo merktir og fá ákveðinn status í samfélaginu - ákveðin hverfi eru merkt, fyrirtæki o.s.frv. Til stendur að gera merkingu að skyldu fyrir alla og þar með yrði komið á einu alsherjar aðskilnaðarkerfi sem nær yfir allt samfélagið. Þeim sem ekki ná eru svo boðnir sálfræðitímar, og jafnframt eru til lyf sem geta þjónað sem hluti af meðferðinni. Ísland virðist vera leiðandi í heiminum á þessu sviði. 

Eitt af því sem er mjög heillandi og áleitið við sögu Fríðu er hversu aðlaðandi og svona eins og enskir (og kannski Tristan) myndu segja seductive þessi hugmynd er. Mér finnst hérna vera hægt að draga upp hliðstæðu við bólusetningarskyldu sem mörgum er hugstæð á okkar tímum. Nú er að orðið þannig víða um lönd að einungis "merktir" (bólusettir) fá aðgang að ýmsum gæðum (ferðalögum/ ákveðnum störfum/ veitingahúsum).... Eftirlitsiðnaðurinn með Heilsuveru (niðurstaða prófsins birtist einmitt með svipuðu hætti og gögn á Heilsuveru)  og ÍE í fararbroddi blómstrar. Og allt er þetta í nafni lýðheilsu og öryggis, sem er vitaskuld gott og blessað - en merkingin í bók Fríðu hefur mjög sambærilegu hlutverki að gegna - viljum við ekki losna við lygara, fíkla og þjófa úr umhverfi okkar, alveg eins og við viljum ekki smitast af Covid19? Er frelsið, réttur til einkalífs, réttur yfir eigin líkama einhvers virði ef í boði er heilsa og öryggi? 


Tristan og Eyja eru tvær persónur bókarinnar sem eru í vanda vegna sífellt stærri yfirráða merkingarsinna. Ein snilldin hjá Fríðu er að þau koma úr andstæðum samfélagsáttum. Tristan er ungur maður með brotna fortíð sem er mikill andstæðingur prófsins, neitar að sitja það en hefur leiðst út í eiturlyfjaneyslu og afbrot. Eftir því sem sögunni vindur fram fær maður stöðugt meiri og meiri samúð með Tristan og það er augljóst að hann mun ná prófinu þvi hann er mjög empatískur karakter. Fíknin sem hann glímir við, en hann er háður Trexi sem er lyf sem hann fékk fyrst í tengslum við sálfræðimeðferðir sem áttu að gera honum auðveldara að ná prófinu, en kemur síðan í ljós að það er alls ekki góð hugmynd að nota það, en þá er búið að gera heilan hóp fólks að fíklum: og þetta er ábyrgð sálfræðingana sem hafa þvegið hendur sínar af þessu og hampa nú prófinu sínu góða. Tristan er jafnframt notaður af andstæðingum merkingarinnar til að skora samúðarstig. Umræða samtímans um vandamál drengja og ungra karlmanna er endurspegluð með einhverjum hætti hérna og líka pælingar um greiningar, Rítalín og fleira. Þetta eru eldfim og flókin mál. Eyja hins vegar er einhvers konar útrásarvíkingur, ófyrirleitin í viðskiptum og einkalífi hefur hún náð langt í starfi, en nú þegar stefnir í að hún verði að sæta merkingu veit hún að hún mun aldrei ná henni. Hún er líka fíkill og reynir að svindla á prófinu með lyfjanotkun sem tekst ekki, hún lýgur og svindlar en allt kemur fyrir ekki. Þegar við horfum á hana verður freistingin til að segja að kannski væri einmitt bara besta mál að fá svona merkingarskyldu.... En þannig er merkingin ekki bara leið til að afmarka einhverja efri millistétt, málið er flóknara. 

Karlar sem hata konur koma við sögu eins og víðar. Ein aðalpersónan glímir við ótta við eltihrelli og er það mál allt frekar óþægilegt og mjög raunverulegt. Svo er að skilja að hann nái prófinu og þar með er ákvarðað að hann sé ekki hættulegur - en lögreglan virðist í öllu fara eftir niðurstöðum sálfræðilegra mælinga og prófa. Ég er reyndar ekki alveg viss með hvernig á að túlka söguna um Daníel og Vetur, nema að líklega sem viðvörun um að svona fyrirbæri eins og prófið sé í rauninni gervilausn. Svo er annað það að auk þess að vera fórnarlamb misheppnaðra sálfræðitilrauna kemur Tristan frá heimili sem er brotið vegna heimilisofbeldis - og hann og bróðir hans eru í bráðri hættu á að taka á sig syndir föður síns og feðra, og það er alveg morgunljóst að þarna er vandamál sem prófið nálgast það ekki að horfast í augu við eða gera einhverja tilraun til að leysa. Sálfræðileg lausn af þessu tagi leiðir algjörlega hjá sér þær rætur vandamála sem Tristan og fólk i hans stöðu eiga rætur sínar í félagslegu óréttlæti og vanrækslu - þær einblína á einkenni en ekki orsakir. 

Fríða notar tungumálið mjög skemmtilega og sérstaklega varðandi Tristan, sem segir alltaf "einhvern meginn", notar mikla ensku og skilur ekki "að hvetja til dáða" ....og þegar hann er í yfirheyrslu hjá lögreglunni er honum boðinn túlkur. Móðir hans, Alexandría notar líka "einhvern meginn" og þegar hún hittir Vetur, sem er kennari systur Tristans, Naómí, leiðréttir Vetur hana með nokkuð yfirlætislegum hætti. Þessi pæling er mjög áhugaverð og lýsir held ég frekar íslenskum samtíma en nokkurn tíma einhverju framtíðarsamfélagi. 

Líkt og í smokkfiskleiknum, sem ég skrifaði nýlega um er hér ákveðin glíma við mannskilning - í einu af bréfunum til Laílu skrifar Tea "undir mjúkum feldinum er dýr sem er gráðugt og grimmt og hugsar bara um eitt: að lifa af." (194) Þarna lýsir hún hreinræktaðri sýn í anda Thomas Hobbes - og spurnigin hvort að allt með merkninguna sé ekki í raun í þessum anda (þó hún setji þetta reyndar fram sem rök á móti henni). Hobbes taldi að við þyrftum einvaldinn (Leviathan) til að hemja okkur; í heimi merkingar hefur prófið, sálfræðingarnir, lyfin og allt batteríið komið í stað hans til að halda okkur í farvegi sem er samfélagslega ásættanlegur. 

Eliot var eitthvað tens á því að allt væri á leið til fjandans þarna fyrri hluti 20. aldar, og er enn er allt á leið þangað - til að tengja við annað verk tilvísað hér í upphafi - holu mennirnir eru í raun appelsínur með gangverk - við erum ekki heilar manneskjur heldur bara safn merkimiða sem einhver nafnlaus kerfi klína á okkur. 



sunnudagur, 9. janúar 2022

Smokkfisksleikurinn

keep you doped with religion, sex and TV
and you think you're so clever and classless and free
but you're still fucking peasants as far as I can see (John Lennon) 



(fyrirvari þetta er skrifað í einangrun og Covid frændi enn aðeins með tök á mér, en læt samt vaða, svo öll vitleysa eða óskýrleiki skrifast á hann, já og þetta inniheldur spoilera. Ég biðst líka afsökunar ef ég er eitthvað að klúðra með nöfnin, reyni mitt besta) 



Hér sjáum við  hinn meistaralega aðalleikara í Squid Game, Lee-Jung jae, túlka aðstæðu persónu sinnar Gi-hun þar sem hann á bókstaflega lífið undir því að ná formi af regnhlíf úr sykurplötu án þess að brjóta það. 

Þessir ofbeldisfullu og skelfilegu þættir slógu rækilega í gegn á Netflix í haust og það er fyrir marga hluta sakir áhugavert. Í fyrsta lagi að þetta eru kóreanskir þættir með mjög litla beina tengingu við vestræna hluti. Í öðru lagi eru þeir mjög ógeðfelldir og ágengir, og í þriðja lagi fela þér í sér algjörlega skilyrðislausa fordæmingu á kapítalísku neyslusamfélagi samtímans, nokkuð sem ég held að kanski hafi að einhverju leyti farið framhjá einhverjum aðdáenda þáttanna. Ég ætla að gera tilraun til að koma með tilgátur um nokkra lykilþræði í boðskap þáttanna hér að neðan. 

Skuldsetning sem valda- og kúgunartæki. Þegar leikendurnir sem hefur verið safnað á staðinn ætla að rökræða við böðla sína þá eru þeim sýnd nokkur dæmi um það hversu skuldsett nokkur þeirra eru, og þannig hafa fórnarlömbin verið fundin og þannig eru þau göbbuð til að halda áfram - vonin um að losna úr skuldahelsinu gerir þau að morðingjum og ómennskum skrímslum (ekki öll samt). Þannig virkar kapítalisminn: neysluhyggja og samkeppni, fjármögnuð með skuldasöfnun gerir okkur að leiksoppum auðvaldsins. David Graeber greinir þetta fyrirbæri mjög glæsilega í meistaraverknu Debt, the first five thousand years og víðar.

Ein lykilsaga og mantra kapítalismans er að peningarnir komi til þeirra sem eru "duglegir". Og framanaf í þáttunum þá fáum við það á tilfinninguna að Gi-hun sem við sjáum hér að ofan sé bara einhver auli, spilafíkill og vitleysingur sem hafi klúðrað öllu. En um miðbik þáttaraðinnar kemur í ljós að ófarir hans koma til vegna þess að hann missir vinnuna í niðurskurði og þaðan fór allt niður á við hjá honum. Svipaða sögu er að segja um flesta leikmenn sem við kynnumst, þeirra ófarir tengjast ólíkum ytri aðstæðum en ekki einhverjum skorti á "dugnaði". 

Afmennskun auðvaldsins. Í samtali Gi-hun og Oh il-Nam í síðasta þættinum kemur fram að hvati hans til að skapa þetta ógeðslega algjörlega siðblinda drápsbatterí hafi verið "að honum leiddist". Nú á tímum me-too, og ýmissa afhjúpana um ýmsa áhrifamenn (fyrst og fremst menn, það er víst þannig, þeas. karlmenn) verður að segjast að þó að þetta sé náttúrulega ýkt þá er þetta eitthvað sem er raunverulegt og við skyldum óttast. Framsetningin á ógeðslegu auðmönnunum (the VIPs) er svo líka ýkt og áhugaverð, en manni finnst það óþægilega einhvern veginn raunhæft.... Trú mín á eina prósentinumer semsagt engin. Því miður. (Greaber á víst þann frasa :-) ) 

Peningar skipta öllu, mannslíf engu. Bæði í Debt the first 5,000 years og í nýju bókinni The Dawn of Everything (meðhöfundur David Wengrow) að hugmyndin sem er ríkjandi í vestrænum samtíma (og þar með í heiminum öllum) um eignarrétt eigi rætur sínar í rómarrétti og sé eiginlega fullkomin og algjör sturlun. Eignarsamband mitt við hlut er þannig að ég get gert hvað sem mig lystir við hann. Eignarkonseptið á svo rætur í þrælahaldi, og eignarhaldi heimilisföðurins á konu sinni og börnum (hann rekur m.a. hvernig einhverjir rómverjar létu lífláta börn sín fyrir einhver smásakir). Eignarhald okkar yfir okkar eigin líkama (við erum eiginlega okkar eigin þrælahaldarar) gerir það svo að við áltíum að við getum með einhverjum samningum afsalað okkur líkama og limum til að taka þátt í einhverjum leik eða losna undan skuldum. Þannig skrifa allir undir einhverja samninga og þar með á það að taka þátt í leik sem endar með lífláti ef þú nærð ekki í mark bara að vera í lagi - og þetta gengur fullkomlega upp í svona hrákapítálískri rökfræði. Samningar sem fólk sem er framarlega í íþróttum, Hollywood og tónlist eru í raun af svipuðum toga. 

Annað áleitið atriði er mannskilningurinn sem liggur svona leikjum til grundvallar, en það er í raun heimspekingurinn Hobbes sem lýsti náttúrulegu ástandi mannsi sem bellum omnia contra omnes - lífinu án yfirvalds sem nasty brutish and short, eða eins og rómverjar (ath!) sögðu homo homini lupus. Þessi grundvallar neikvæða sýn á manneðlið er í raun það sem Graeber og Wengrow eru að gagnrýna í verki sínu um dagrenningu alls. Nútíma útgáfur af því að "sanna" þessa sýn eru svo tilraunir í félgassálfræði, eins og Stanford Prison tilraun Zimbardos og hlýðnitilraunir Milgrams - en báðar þessar tilraunir hafa sætt mikilli gagnrýni undanfarið (hlekkir að neðan). Í áðurtilvitnuðu samtali Gi-hun og Oh il-Nam kemur sá gamli (sem er frábærlega leikinn af O Yeong-su, og frábært að láta krúttlega gamla kallinn vera mesta drullusokkinn af öllum) með þau undarlegu rök að þar sem að fólk sé hvort sem er upp til hópa drullusokkar þá væri það bara í lagi að gera eitthvað á borð við það sem hann gerði. Með því að setja fólk í aðstæður eins og gert er í þessu þáttum og hefur verið gert í ýmsum tilraunum framkallast náttúrulega als konar hegðun, en það er fráleitt að halda því fram að það sanni einhliða eitthvað um illsku sem búi eðlislægt innra með okkur öllum. 

Annað sem er áhugavert er sú brenglaða siðferðiskennd sem kemur fram í því að í leikunum upplifi leikmenn réttlæti sem þau hafi aldrei upplifa úti í samfélaginu, og þannig verða aðalskipuleggjendur ægilega heilagir þegar kemur í ljós svindl, og biðja þátttakendur með miklum tilþrifum afsökunar. Ekki er hugsað um óréttlætið sem gerði að þau eru komin á þennan stað, og þar að auki hikar þeir svo ekki við að breyta aðstæðum til að gera leikinn meira spennandi fyrir the VIPs. 

En snilld þátttanna að Gi-hun býr yfir einhverju öðru og setur manngildið hærra en peningana, þó hann taki þátt í ofbeldinu verður hann meira og meira afhuga því. Einkum er atriðið þar sem hann vill hætta leik rétt áður hann er að sigra - bjarga lífi svikuls og ofbeldisfulls "vinar" í stað þess að taka á móti fáránlega stóru verðlaunafénu, og svo að hann snertir ekki verðlaunaféð þegar hann sleppur út. 

Greinilegt er að það verður önnur sería, og spennó að sjá hvert verður farið með þetta. Eitt atriði stendur verulega í mér, en það er hverjir verðirnir eru og hvernig var hægt að fá þá til að taka þátt i þessu blóðbaði, en þetta er oft vandamál í svona þáttum / kvikmyndum að illmenninn hafa einhvern óteljandi fjölda fólks til að fremja glæpi fyrir sig, en það er erfitt að skilja almennilega hvatann hjá þeim - þetta verður einkum áleitið eftir að hver Kapteinninn var kom í ljós. Ef þetta hefði verið sett fram sem e.k. költ hefði þetta mögulega getað meikað sens, en það er ekki þannig.

Squid Game á Netflix: Squid Game






mánudagur, 1. júní 2020

Lög og textar 4 - hinn gaurinn sem er fáviti

Þá er komið að fjórða pósti í þessum vinsæla flokki.  Að þessu sinni tek ég fyrir tegund laga þar sem mælandinn ávarpar einhvern einstakling sem er með einhverjum hætti of. Of tanaður (fer í ljós þrisvar í viku), of duglegur í ræktinni (línum skorinn), of menntaður (sjá að neðan), of frægur (alveg ofboðslega). Frummælandi lagsins er hins vegar með einhvers konar blöndu af minnimáttarkennd og yfirlæti - en er í (nánast) öllum tilfellum siðferðilega hafinn yfir viðfang lagsins, gjarna þá tengt einhvers konar einfaldleika, mögulega fátækt (sem er oft frekar skondið miðað við að höfundar eru gjarna tónlistarmenn sem hafa náð mjög langt).... Mjög gjarna er viðfangið nýlega tekið saman við fyrrverandi ástkonu frummælanda, en það þarf þó ekki að vera, stundum er þetta svona bara eitthvað af því bara. Þessi tegund laga virðist vera nánast að öllu leyti hluti af reynsluheimi karlmanna, Jolene er alls ekki svona lag ef einhver skyldi vera að hugsa um það.

Ég vel tvö svona lög sem mér finnast frekar skemmtileg, annað mjög vel þekkt og hitt síður. Fyrra lagið er með danska söngvaskáldinu C.V. Jorgensen og heitir Entertaineren. Hérna er ávarpaður eitthvað ógurlegt mikilmenni, hvers frægð og árangur er byggður á sandi, sem enginn virðist hafa fattað nema frummælandi lagsins. C.V. er nokkuð þekktur í heimalandi sínu, og er ágætis viðbót fyrir okkur á Íslandi að kynnast honum, en þekking á danskri rokktónlist virðist ekki ná mikið lengra en Kim Larsen. Lagið er fullt af geggjuðum línum - "du har studeret i New York London og Paris, kan udtale dig på et hidtil ukendt akademisk vis" ... og svo er hann líka "den legemliggjorde EDB" på turné med monologer uden mening i". Ekki er ólíklegt að laginu hafi verið beint gegn einhverjum ákveðnum einstaklingi sem var áberandi í Danmörku á áttunda áratugnum, en það er aukaatriði, lagið stendur fyrir sínu þó maður viti það ekki. Entertainerinn er klárlega "of menntaður" og "of frægur". 

Seinna lagið þekkja fleiri, Ed Sheeran, New Man. Hér er fjallað um nýjan unnasta, hugsanlega æskuástar frummælanda. Þetta er einn af þessum sem hefur staðið sig of vel í ræktinni, en það áhugaverðasta sem hann hefur þó tekið sér fyrir hendur er að láta bleikja á sér rassgatið, en ég vil ekki hugsa of langt um hvað það þýðir. Hitt sem mér finnst skemmtilegt er að hann er með tattoo sem hann skilur ekki. 

Íslensku lögin í þessum geira eru allmörg, hugsanlega mætti færa rök fyrir því að Útrásarvíkingurinn okkar í Mosanum sé þarna einhvers staðar nálægt, en ég er nú ekki viss.

mánudagur, 11. maí 2020

Bubbi og ekkrettan

Það er kannski að æla á óstöðugan, en ég ætla aðeins að tjá mig um þetta með Bubbaplakatið ógurlega og fjarlægðu sígarettuna.

Fyrri hlutinn er flókið samband þessa við hið velloðna og illafmarkanlega hugtak "pólítísk rétthugsun" og hópaskiptinguna sem því tengist: góða fólkið og óða fólkið.

Ég skil þetta þannig að óða fólkinu finnst voða leiðinlegt að geta ekki birt myndskeið af sjálfu sér nöktu japlandi á pandaborgara (best af nýslátruðu) lesandi upp úr litla svarta sambó - án þess að einhverjir leiðindalattelepjandilopatreflar komi með einhverjar athugasemdir um athæfið; og ef ég skil umræðuna rétt þá jafngildir það að koma með athugasemd um eitthvað að "banna" það.

Og það má ekkert lengur.

Ekkert.

Og þegar lítil retta er tekinn úr munninum á Bubba litla, já þá tekur nú steininn úr (filterinn var örugglega farinn).

Þetta er skemmtilegt. En það ég tek frá þessu er þessi gjörningur býr til alveg nýtt verk, og verk þar sem fjarveran er miðpunkturinn. Það sem ég heillast af er ekkirettan sem er ennþá á myndinni og er í rauninni það sem myndin er af ef betur er að gáð.

Þetta minnir mig á Huldumannstyppið á Reðursafninu sem Arndís Bergsdóttir reit (meðal annars) um. .
Skoðiði myndirnir og pæliði í þessu.



þriðjudagur, 21. apríl 2020

Lög og textar 3: um lífið í skólanum

Það er áhugavert að sjá hvernig skólar og kennarar eru settir fram í menningarefni. Í bíómyndum eru ýmsar útgáfur, oft neikvæðar, en þó eru til myndir og þættir þar sem koma við sögu svona hetjukennarar og svoleiðis. Í dægurtónlist er hins vegar eiginlega alltaf um mjög neikvæða mynd af þessum geira mannlífsins að ræða og og ég bjóð til litla blöndu af enskum og íslenskum lögum af þessu tagi - tja - mögulega til að hressa okkur við eða eitthvað...

Skólalög - playlisti á Spotify

Við byrjum með Smiths - Headmasters Ritual. Morrissey er ekki að skafa utan af fyrirlitningu sinni á kennurum Manchesterborgar: "spineless swines, cemented minds" - áhugavert með hann þar sem hann er mikill ensku- og bókmenntamaður - en grunnskólagangann ekki verið hamingjurík virðist vera.

Næst skellum við okkur í langfrægasta af þessum lögum, Another Brick in the Wall. Kannski ofspilað og dáldill klisja, en ég hef alltaf dáldið gaman af skýringunni á því hvers vegna kennararnir eru svona ömurlegir - "when they came home at night their fat and psychopathic wives would beat them / within inches of their lives".... Roger Waters var nú samt held ég einhver listaskólafígúra eins og Morrissey en hvað veit maður. Myndbandið var geggjað töff.

Nú komum við heim og Mannakorn fjalla um Gamla skólann. Var alltaf smá hissa að Magnús Eiríksson hafi verið í Latínu í barnaskóla, en kannski féll það bara vel ínn í textann. Ekki sérstaklega hamingjuríkar skólaminningar, en þó ekki sama hrikalega beiskjan og hjá þeim ensku í fyrrii lögunum, og smá samúð með okkur kennaragörmunum: "Misupplagðir lúnir lærimeistarar"....

Og þá er það Gaggó Vest - svoldið svona uppblásinn Eitís slagari en góðir sprettir inn á milli. Smá húmor inn á milli en þó aðeins meiri beiskja en hjá Mannakornum - ræðan sem Egill flytur fyrir hönd  kennarans er kannski aðeins í ýktari kantinum, en hvað veit maður.

Við endum aftur í Englandi á svona aðeins hressari nótum með Madness - ekki þessi hrikalega beiskja sem fyrstu tveir söngvarnir bera með sér en samt ekki sérstaklega lofsamleg skólaumfjöllun. "All the teachers in th pub/ passing round the ready rub (sem er annaðhvort áfengi eða tóbak) / trying not to think of/ when the lunch time bell will ring again."

Kannski væri gaman að heyra ef einhver man eftir einhverju alvöru lagi sem er aðeins jákvæðara... en við getum bara tekið það til íhugunar hvað við gerum svo með þessi söngva, sem eru nú allir hver með sínum hætti nokkuð skemmtilegir.

laugardagur, 21. mars 2020

Lög og textar 2 B&B

Ég held áfram að pæla í textum, og að þessu sinni ték ég lagatvennu, og enn er ég í gömlum brýnum, og ekki farið í garðinn þar sem hann er lægstur. Í dag kíkjum við á The River eftir Bruce Springsteen og Aldrei fór ég suður eftir Bubba Morthens. 

Þetta eru hvort tveggja nokkuð áhugaverðir og sterkir textar, sem hafa náð að grípa marga - og heil tónlistarhátíð heitir í höfuðið á laginu hans Bubba! Það er augljóst að texti Bubba er undir áhrifum frá texta Bruce í þessu samhengi, skoðum það betur á eftir, og eins og Bubbi hefur nú talað um þá er formaðurinn mikilvægur áhrifavaldur hjá honum. Textarnir og YouTube vídeó með lögunum eru hér fyrir neðan. 

The River er frábærlega sterkur texti í látleysi sínu. Valið á á sem tákni er vitaskuld ekki frumlegt, en það er hins vegar mjög sterkt. Hér er sögð einföld saga manns með brostna drauma, sem fer of ungur út í hjónaband og fullorðinslíf og hefur misst fótana. Á sama tíma hefur samfélaginu hans hnignað, atvinnuleysi og þurrð á öllum sviðum einkennir líf hans. Við heimsækjum ánna á mismunandi tímum í lífi hans, og áin er lífgjafi og aflvaki.... nema í síðasta skiptið þá er áin þornuð upp. Línan "Is a dream a lie if it don't come true, or is it something worse.."  ljáir laginu ákveðin óhugnað, sem ég næ samt ekki alveg að festa fingur á. Í mínum huga þá er það mikilvægt að í upphafinu þá elskaði hann Mary, en núna er ástin, eins og áin þornuð upp. 

Aldrei fór ég suður er mjög svipuð saga, nema að hún er ekki eins skýr og fjallar um íslenskan alþýðumann á landsbyggðinni. Í þessum texta, og kannski í höfundarverki Bubba í heild sinni, er mjög klofin afstaða til lífsins í þorpinu. Annars vegar er mynd dregin upp af algjörlega heilalausri hörmungatilveru "þrælar alla vikuna, vaðandi slor og salt". Hins vegar er eins og það sé slæmt að unga fólkið fari "hér er ekkert sem heldur í" .... En ef hann "veit að það er til annað líf" er það þá ekki það sem hann ætti að óska börnunum sínum? Augljósu tenginin við á Springsteens er svo erindið um barneignina. Það sem skilur að hér er hins vegar að "sæta dúkkan hans Bensa í Gröf" hefur ekkert tilfinningagildi fyrir aðalpersónuna, sem mér finnst fráhrindandi - ólíkt persónu Bruce, sem lá andvaka á árbakkanum yfirkomin af ást. Að auki er það ekki svo að barneignir á ungum aldri séu líkt því eins heftandi á Íslandi eins og í því þrúgandi kaþólska umhverfi sem Bruce Springsteen á rætur sínar í, svo þessi hluti sögunnar er að mínu viti frekar ósannfærandi og gerir lítið fyrir textann, nema ef vera skildi að mynda tengsl við the River - sem gætu alveg verið rök í sjálfu sér. 

Tónlistarlega séð eru þetta frábær lög að mínu mati, þó að eitís fílingurinn í Aldrei fór ég suður skjóti stundum aðeins yfir markið, og trommurnar, tja, aðeins of mikið - hljómborðið sem opnar og lokar laginu er hins vegar alveg stórkostlegt. Munnharpan í the River er geggjuð, og söngur Bruce með bakröddunum í endanum algjört bjútí.
 
The River
I come from down in the valley
Where mister when you're young
They bring you up to do like your daddy done
Me and Mary we met in high school
When she was just seventeen
 
We'd ride out of this valley down to where the fields were green
We'd go down to the river
And into the river we'd dive
Oh down to the river we'd ride
 
Then I got Mary pregnant
And man that was all she wrote
And for my nineteenth birthday I got a union card and a wedding coat
We went down to the courthouse
And the judge put it all to rest
No wedding day smiles no walk down the aisle
No flowers no wedding dress
 
That night we went down to the river
And into the river we'd dive
Oh down to the river we did ride, yeah yeah
 
I got a job working construction for the Johnstown Company
But lately there ain't been much work on account of the economy
Now all them things that seemed so important
Well Mister they vanished right into the air
Now I just act like I don't remember
Mary acts like she don't care
 
But I remember us riding in my brother's car
Her body tan and wet down at the reservoir
At night on them banks I'd lie awake
And pull her close just to feel each breath she'd take
Now those memories come back to haunt me
They haunt me like a curse
Is a dream a lie if it don't come true
Or is it something worse That sends me down to the river
Though I know the river is dry
That sends me down to the river tonight, yeah
Down to the river
My baby and I
Oh down to the river we ride, oh
Ooh ooh, ooh ooh
Ooh ooh, ooh ooh
 
 Aldrei fór ég suður
 
Bubbi Morthens
 
Ég vakna oftast þreyttur, varla með sjálfum mér
En ég veit það er til annað líf en það sem ég lifi hér
Og þrá mín hún vakir, meðan þokan byrgir mér sýn
Mig þyrstir í eitthvað annað en gúanó, tékka og vín

Á fiskinum lifir þorpið, þorskurinn er fólkinu allt
Það þrælar alla vikuna, vaðandi slor og salt
Við færibandið standa menn en þeir finna þar enga ró
Flestir þeir ungu komnir suður þar sem að draumunum er nóg

Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt
Kannski var öllum öðrum hlýtt en mér var allaveganna kalt
Það biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng
Bátarnir lágu tómir við kajann í kinnungunum söng

Faðir minn átti drauma sem dóu fyrir lítið fé
Mig dreymdi um að verð'að manni en ég náði honum aðeins í hné
Ég gleymi seint þeim augum, gínandi botnlaust tóm
Gamall maður fyrir aldur fram með brostinn hrjúfan róm

Þegar ég var rétt orðinn sautján, um sumarið barst mér frétt
Að sæta dúkkan hans Bensa í Gröf væri orðin kasólétt
Næturnar urðu langar, nagandi óttinn með
Negldur ég gat ekki tekið til baka það sem hafði skeð

Aldrei fór ég suður, alltaf skorti mig þor
Hvert einasta sumar var því frestað, svo kom haust og svo vetur og vor
Nú er ég kominn á planið og ég pæli ekki neitt
Ég pækla mínar tunnur fyrir það ég fæ víst greitt

Ég hugsa oft um börnin mín, bráðum kemur að því
Að þau bíða ekki lengur, þau fara, hér er ekkert sem heldur í
Enn koma tómir bátarnir og bræðslan stendur auð
Baráttan er vonlaus þegar miðin eru dauð
 




























þriðjudagur, 17. mars 2020

lög og textar 1 - armband Paul Simons

Textar í dægurtónlist eru mér hugleiknir, og þá einkum góðir textar. Þegar dvelja þarf heimavið og taka því rólega má stytta sér stundir með ýmsu, en eitt af því er klárlega að hlusta á góða tónlist, og pæla í henni og textunum. Fyrsta lagið er lag með Paul Simon á efri árum sem heitir Wristband. Þessi texti er einstaklega vel heppnaður. Það sem er svo snilldarlegt er hvernig er farið úr lítilli gamansögu með sterku sjálfsírónísku ívafi (gamla stjarnan sem dyravörðurinn þekkir ekki/ vísun í að stjarnan er lágvaxinn ... ) yfir í pælingar um alheimsbyltingu, misskiptingu - þar sem að tónleikaarmbandið verður að tákni fyrir það hverjir hafa orðið ofan á, og hverjir undir í samfélaginu. Að taka litla hugmynd og stækka hana - og að koma manni algjörlega í opna skjöldu í lok lagsins.

Annað sem gerir þetta verk mjög sjarmerandi er snilldarlega lágstemmd útsetningin og frábær notkun ásláttarhljóðfæra.


fimmtudagur, 3. janúar 2019

Gæði bóka og tónlistar

"Hating popular things does not automatically make you an interesting person." (af víðnetinu) 

Á undanförnum misserum hefur einn af tengiliðum mínum á Facebook verið að fara í gegnum rokksöguna og leggja mat á gæði verka hinna ýmsu hljómsveita úr fortíðinni, nefna má þar Queen og Sonic Youth. Í flestum tilfellum er mat hans á viðkomandi böndum fremur neikvætt, og rökstyður hann niðurstöður sínar með ýmsum hætti. Viðbrögðin eru svo blanda af húrrahrópum og mikilli hneykslan.

Mér finnst þetta dæmi alveg skemmtilegt, en þó finnst mér þessi nálgun frekar grunn. Sjálfskipaðir (yfirleitt karlkyns) dómarar um gæði eða skort á gæðum fyrirbæra hafa verið hluti af lífi mínu (og okkar flestra) alla tíð - og þeir hafa fundið sér frábæran vettvang á víðnetinu. Þessi plata er drasl. X kann ekkert að spila á gítar. Þessi rithöfundur er ofmetinn. Dómararnir taka sér ákveðna leiðtogastöðu og fylgismenn (og jú -konur) þeirra fá stöðu sína af því að taka undir og jafnvel ýkja skoðanir leiðtoga sinna. Mælikvarðarnir mega samt ekki vera of augljósir, því að mikilvægt er að tryggja að fylgisveitin viti hvar hinn endanlegi dómur er kveðinn upp. (uppáhaldið mitt er reyndar þegar einhver spekingurinn "uppgötvar" að einhver klassískur, vinsæll og virtur höfundur sér í rauninni bara einhver horbjóður).

Fórnarlömb slíkra alviturra dómara ná frá Laxness, gegnum Queen og Friends og ná miklum hæðum í fyrirlitningu á höfundum á borð við J.R.R. Tolkien og J.K. Rowling.  En hvernig er samband okkar við bækur (og tónlist, og þætti, og kvikmyndir og .... )?  Dómararnir eru greinilega víðlesnir og hlustaðir (jafnvel al-) og geta út frá þeirri víðfeðmu þekkingu sinni metið gæði allra hluta. Ég held samt að upplifunin sem rithöfundurinn V.E. Schwab lýsir í myndbandinu hér að neðan (horfið!) sé miklu nær því sem við flest þekkjum. Við löðumst að tilteknum verkum, og höfundum og við myndum einhvers konar trúnaðarsamband. "Gæði" verkanna spila hér væntanlega einhverja rullu, en það er samspil þeirra við okkar flóknu verund sem getur af sér að við viljum halda áfram að lesa (eða hlusta, eða horfa, eða.... ). Mér finnst það að byrja Tolkien fyrirlestur á því að viðurkenna að hún hafi aldrei lesið Tolkien magnað - og svo lýsir hún hvernig hún varð lesari fyrir það að kynnast Harry Potter ... það er enginn vafi að Tolkien er lykilhöfundur í því að gera mig að lesara... og hafið yfir allan vafa að Queen er eitt af því sem gerði mig að hlustara.



 
 

Það er ekki þar með sagt að verk Tolkiens (rasismi, kynjahalli, langdregni) Rowling (rasismi?, holur í heimsbyggingu .... )  og Mercurys (allt allt allt allt allt allt of pródúserað) séu ekki ýmsum annmörkum háð, og mikilvægt að kafa í þá (annmarkana). Sterk tengsl við ákveðinn verk geta styrkst eða dofnað eftir aldurskeiðum og með þroska. Þegar í ljós kom að Woody Allen er perri eyðilagði það myndirnar hans fyrir mér. Ég veit alveg að það er ólógískt á einhverju plani, en ég upplifði þetta sem hrein svik og gekk í gegnum ákveðið sorgarferli. Ekki djók. 

Þannig að ég er ekki boða einhverja alsherjar afstæðishyggju um að ekki sé hægt að meta gæði tónlistar eða ritlistar (tæknilega færni hljóðfæraleikara, persónusköpun, gott rím, flottan stíl o.s.frv.). Ég myndi hins vegar miklu frekar vilja als konar umræðu um alls konar hluti í alls konar verkum en ekki einhverja einfalda alsherjardóma sem mér finnst snúast meira um að dæmendur séu að staðsetja sig efst í einhverjum píramída menningarlegra álitsgjafa sem við aumir fantísíulesandi queenfílandi plebbarnir eigum að lúta í duftið fyrir. 

Og ég held svei mér að maður geti alveg verið áhugaverð persóna þó maður fíli Sonic Youth, glotti stundum að Friends og viti í hvaða Hogwarts húsi maður er. 

Gryffindor btw. 

Image result for Gryffindor logo
 

sunnudagur, 16. september 2018

Harry Potter og helgiritin

Fyrir nokkru (þá staddur í Osló) skrifaði ég örlítið um Harry Potter, þann póst má lesa hér. Í þessum pósti var ég upptekinn af holum og einkennilegheitum í heimsmíði Rowling (langar reyndar líka að bæta við pælingu um myndirnar, tek það kannski betur síðar). Síðan þá hef ég haldið áfram að lesa seríuna, og datt svo niður á þetta podcast hérna, sem mætti kalla á íslensku Harry Potter og helgiritin.

Skemmst er frá að segja að þetta er mjög áhyerilegt og áhugavert (og aðgengilegt á Spotify) - en útgangspunkturinn er að lesa bækurnar með aðferðum sem notaðir eru í nálgun á helgirit. Ég er bara kominn á kafla 6 í fyrstu bók og mjög ánægður með hvað það er mikið eftir :-) ....

Það er margt í þessu sem er gott, en strax í upphafi þá kemur fram að nálgun þeirra er önnur en mín í blogginu - þau eru ekki að leita að holum eða slíkt heldur nálgast verkið alltaf jákvætt. Þau reyna svo líka að nálgast alla karaktera eins jákvætt og þau geta, og hafa meira að segja náð að segja góða hluti um Dursley hjónin og Dudley.

Annað sem vakti áhuga minn er að einn af kynnunum, Vanessa Zoltan, starfar sem "humanist chaplain" - og lítur á skáldskap og þess háttar sem ígildi helgirita fyrir nútímafólk - sækir óhikað innblástur frá trúarbrögðum og ber virðingu fyrir þeim - en lítur svo á að guð sé ekki til og að hægt sé að ná að uppfylla þarfir fyrir helgisiði og sáluhjálp án þess að þær hvíli á guðstrú.

Að mínu mati er nálgun þeirra mjög heillandi, og ég hald að þarna gæti líka verið hugmyndabanki sem mætti nýta í kennslu á bókmenntum.... kannski meira um það síðar... 


.

fimmtudagur, 1. febrúar 2018

lagaþrenna

Hér eru þrjú ólík lög sem mynda þó þrennu:

1) Á rauðu ljósi, höf. Magnús Eiríksson, hljómsveit Mannakorn



2) Diamonds on my Windshield, Tom Waits 

,



3) Brekka, HAM (reyndar hafa HAMverjar breytt textanum, ég hugsa mínar pælingar aðallega út frá textanum eins og hann er á Sögur af Helvíti mannanna) 





Óíkar tónlistarstefnur, ólíkir listamenn, ólíkir tímar. Í aðalhlutverki í öllum lögunum er karlmaður, sem er undir stýri og lögin gerast í tilteknum ökuferðum þessara einstaklinga. 

Sá sem er á rauðu ljósi er líklega sá sem er tæpastur á tauginni. Hann er staddur í umferðarteppu og virðist vera í ástarsorg ("hugsa um tilveruna og þig") og er jafnframt nokkuð dómharður ("hann flautar á mig eins og óður, asninn fyrir aftan mig"). Þetta lag sver sig líka í ætt laga sem fella harða dóma um gráan hversdag vestrænnar millistéttar (t.d. Madness, Grey Day, Wings Just another day).

Lag Waits um demantanna, sem er ótrúlega falleg mynd (minnir á Fljúga hvítu fiðrildinn) er nú líklega það besta í þessu setti. Tónlistin undirstrikar textann vel, og fílingurinn er einhvern veginn angurvær, en samt yfirvegaður...."the radio's gone of the air, and it gives you time to think" .... Hér er ekki felldur neikvæður dómur yfir lífi okkar, frekar bara brugðið upp mynd, sem blanda af einhverju fallegu og eðlilegu en felur líka í sér einhverja óskilgreinda þrá .... hver er þessi sem hann minnist þarna undir lokin? Það er líka skemmtilegt pæling um samband manns og vélar, eins og þegar vélin hvíslar í lokin að nú sé komið heim....

Lagið Brekka er kannski ekki alveg týpískt Ham lag, en líkt og flest þau sem ég þekki er hér fjallað um karlmenn og reynsluheim þeirra. Mig grunar reyndar að meðlimir bandsins séu ekki reyndir trukkabílstjórar, en það kann að vera rangt. Aðstaða bílstjórans er önnur hér en í fyrri tveimjur lögunum; þetta er atvinnubílstjóri sem er búinn að koma sér í klandur með því að taka að sér verk sem hann hefði betur látið ógert "ég hefði átt að láta kallhelvítið eiga sig" ... ólíkt mönnunum í fyrri tveimur lögunum er hann ekki í neinum tilvistarpælingum heldur er enn í bráðum og aðsteðjandi lífsháska, aleinn á ferð upp á heiði, bremsulaus í óveðri með 30 tonn af stáli.... 



laugardagur, 6. janúar 2018

sút fló í brjóstið inn

Sem áhugamaður um dægurlagatexta, ljóð og menningu verð ég alltaf rosakátur að finna tengingar, vísanir og hliðstæður. Fjórða janúar 2018 hélt Jóhanna Björk vinkona mín upp á fimmtugsafmæli sitt með því að halda sýningu á Með allt á hreinu í Bíó Paradís, algjörlega frábær skemmtun og dásamlegt að rifja upp þessa mynd sem ég myndi álíta að sé einhvers konar meistaraverk.

Textarnir við lögin eru margir hverjir eitursnjallir og mikið leikið sér með alskonar vísanir og afbakanir. Þegar svo þessi útgáfa af grýlulaginu Sísí fríkar út kom heyrði ég línu sem ég hjó verulega eftir:


Eða: "sút fló í brjó"

Hér er augljóslega vísun í Megas: 



En hann sótti þetta víst í Hallgrím Pétursson, Passíusálmur nr. 8:  


8
Pétur með bljúgu bragði
bráðlega sagði nei,
sór sig og sárt við lagði,
svoddan mann þekkti hann ei.
Glöggt þegar gerðist þetta,
gól haninn annað sinn.
Síst mátti sorgum létta.
Sút flaug í brjóstið inn.


....en þetta upplýsti Þröstur samkennari mig um enda hefur hann nýlega notað þetta í sínum eigin texta, eða Nökkva: 

"Er sút flýgur brjóstið inn / í bölmóð leggst ei herra minn"



Og tek ég undir þau orð, forðumst bölmóð og fyllumst gleði yfir því hvernig orð og hugsanir fylgja einhverjum dularfullum þráðum í sköpunarheiminum.... 





föstudagur, 6. október 2017

Er Draco Malfoy með kennitölu?

Ólíkt einhvrejum menningarlegum meðvituðum aðilum á víðnetinu þá hef ég býsna gaman af Harry Potter bókunum. Skemmtilegasti hluti þeirra finnst mér reyndar yfirgengilega gróteskan sem tengist Dursley fjölskyldunni. Ég er núna í gangi með að lesa bækurnar upphátt fyrir Sölku Nóu, en ég fór í gegnum 1-4,5 fyrir Sóldísi fyrir nokkrum árum. Myndirnar hef ég svo allar séð og flestar oft.

Það er ákveðin atriði sem mér finnst samt erfitt að gútera við heiminn sem Rowling hefur skapað. Í stað þess að leggjast í einhverjar voðalegar rannsóknir ætla ég bara að láta vaða og sjá hvort einhverjir dæhard aðdáendur geti vísað mér vegar til uppljómunar.

1) Tengsl mugga- og galdraheimsins. Hvernig má það vera að svokallaðir "blóðníðingar"  á borð við Hermione geta verið til án þess að þessi tilvera þeirra uppgötvist í gegnum fjölskyldur þeirra?
2) Hvernig er menntun barna úr "hreinum" galdrafjölskyldum háttað áður en þau koma í Hogwarts? Er tilvera "hreinu" galdrafjölskyldanna alveg utan við radar hverskyns veraldlegra yfirvalda? Er Draco Malfoy með kennitölu?
3) Hvernig stendur á því að Draco velti fyrir sér að fara kannski í Durmstrang, en ekki einhvern annan galdraskóla þar sem væri töluð enska? Eða er enska (með austurevrópskum hreim í Durmstrang og frönskum í Beauxbatons) mál allra galdraskóla?
4) Hvernig stendur á því að það virðast vera nákvæmlega jafnmargir á hverju ári á hverri vist, þó svo að Flokkunarhatturinn velji samkvæmt persónueinkennum. Það virðist vera að vistirnar í hverjum árgangi séu saman í mismunandi fögum (Gryffindor-Slytherin/ Gryffindor-Ravenclaw) .... engu að síður er svo að skilja að það séu líka valgreinar. Er aðeins að velta fyrir mér námskránni og stundatöflusmíði.
5) Er "galdramálaráðuneytið" einhvers konar alheimsyfirvald eða ríkir það bara yfir breskum galdramönnum. Gefið er í skyn ef ég man rétt að Karkaroff hafi verið í slagtogi við Voldemort og að ráðuneytið hafi því horn í síðu hans. Það virðist vera yfirþyrmandi anglósentrismi í þessu sem er svoldið erfitt að átta sig á. Talað er um galdramenningu hér og þar en kjarni hennar virðist vera í Bretlandi.
6) Önnur spurning um Galdramálaráðuneytið? Hvernig er "galdramálaráðherra" valinn, og hvert er valdsvið hans? Er hér um einhver konar meritokasíu að ráða, einhvers konar framgangskerfi sem er að einhverju leyti fórnarlamb spillingar? (það eru klárlega átök innan galdraheimsins, frjálslyndir versus fasistar, en þessi átök eiga sér ekki farveg í gegnum flokkspólítík af neina tagi, jafnframt virðist ekki vera um neins konar skiptingu valdsins að ræða).

...ég ítreka að ég hef gaman af bókunum, en þegar lagst er út í veraldarsmíði á þessum skala er óhjákvæmilegt að svona spurningar komi upp, ekki síst þegar farið er út í að prjóna aftan við enn meira stöffi..... Skyld pæling er svo þessi klassíska hvað gerði Aragorn við alla orkana eftir að Sáron var alllur - þurfti að ræsa einhvers konar helför eða hvað....